Þróunarverkefnum Klasa miðaði vel áfram á árinu 2025

Stærstu verkefni Klasa snúast um mótun byggðar alveg frá skipulagsstigi til afhendingar íbúða eða atvinnurýma. Borgarhöfði og 201 Smári eru þannig langtímaverkefni, þau taka fjölda ára og krefjast skýrrar framtíðarsýnar. Á árinu 2025 miðaði verkefnum vel áfram og mikilvægar vörður markaðar í átt að uppbyggingu heildstæðra borgarhverfa þar sem húsnæði og umhverfi styrkir lífsgæði þeirra sem þar búa og starfa.

Uppbygging hafin á Borgarhöfða

Kaflaskil urðu í þróunarsögu Klasa á Borgarhöfða í vor þegar tekin var fyrsta skóflustunga að grunni Eirhöfða 8. Skömmu fyrir jól var lokið við að steypa efstu þakplötu á fyrsta húsinu og er vinnan á undan áætlun. Sagan hófst fyrir um 20 árum og hefur Klasi síðan þá unnið náið með Reykjavíkurborg og öðrum þróunaraðilum á svæðinu að skipulagningu nýs borgarhluta.

Eirhöfði 8 er fyrsti uppbyggingarreitur Klasa af sjö aðliggjandi reitum á Borgarhöfða. Á reitunum verða samtals um 800 íbúðir og 23 þúsund fermetrar menningar-, skrifstofu-, verslunar- og veitingahúsnæðis. Staðsetning uppbyggingarsvæðis Klasa, í hjarta hverfisins, við Krossamýrartorg, nýjan borgargarð og eina megin skiptistöð Borgarlínu styður við mannlíf á svæðinu og bílléttan lífsstíl þeirra sem það kjósa.

Eirhöfði 8, íbúðarhúsnæði hannað af Tendra arkitektum. Mynd: Tendra

Teikningum hefur verið skilað fyrir alla uppbyggingarreiti Klasa á Borgarhöfða

Undir lok sumars skilaði Klasi inn aðaluppdráttum fyrir alla uppbyggingarreiti sína á Borgarhöfða. Þá gerði félagið samkomulag við Heima um uppbyggingu glæsilegrar 14 þúsund fermetra skrifstofubyggingar sem nú er tekin að rísa við Dvergshöfða 4. Nánari upplýsingar um hverfið og uppbygginguna má finna á borgarhofdi.is

Krossamýrartorg á Borgarhöfða. Mynd: THG arkitektar

Falleg Svansvottuð skrifstofubygging reist í 201 Smára

Klasi flutti á haustmánuðum í nýja skrifstofubyggingu við Silfursmára 12 sem verður Svansvottuð og er hluti 201 Smára hverfisins. Klasi hefur unnið að þróun og uppbyggingu 201 Smára síðan 2014 en þar eru nú alls um 658 íbúðir auk atvinnuhúsnæðis.

Silfursmári 12. Ny skrifstofubygging í 201 Smára hverfinu. Mynd: Batteríið arkitektar

Framtíðarsýn fyrir lokaáfanga 201 Smára kynnt

Þróun 201 Smára er ekki lokið. Í nóvember var kynnt tillaga að breytingu deiliskipulags fyrir Silfursmára 1-7. Svæðið er í dag hluti bílastæðis sunnan við Smáralind. Þar hyggst Klasi reisa 80 íbúðir auk atvinnuhúsnæðis og um 450 bílastæða, flest í kjallara. Byggingarnar munu falla vel að núverandi byggð og skapa tækifæri til að móta lifandi torg, leiksvæði og gönguleið að Smáralind með góðum birtu- og veðurskilyrðum. Nánari upplýsingar um tillögu Klasa að breyttu deiliskipulagi má finna á 201.is.

Klasi og Tendra hlutskörpust í samkeppni um þróun Sorpulóðar

Á vormánuðum tók Klasi, í samvinnu við Tendra arkitekta, þátt í hugmyndasamkeppni Kópavogsbæjar um þróun Sorpulóðarinnar að Dalvegi 1. Tillaga Klasa og Tendru, sem reyndist hlutskörpust í samkeppninni, miðaði að því að móta líflega og aðlaðandi umgjörð um skapandi greinar og verslun í nánum tengslum við náttúru og útivist Kópavogsdals. Fjölbreytt aðstaða svo sem leiksvæði og árstíðabundin tjörn styðja við mannlíf á svæðinu og tengingu við dalinn. Bæjarráð Kópavogsbæjar hefur lagt til að Klasa verði veitt vilyrði fyrir lóðinni og hafin verði vinna að nýju deiliskipulagi.

Tillaga Klasa og Tendru arkitekta að þróun á Dalvegi 1
Tillaga Klasa og Tendra fyrir Sorpulóð í Kópavogsdal. Mynd: Tendra arkitektar

Framsýni lykilþáttur í árangursríkri borgarþróun

Í eignasafni Klasa eru fleiri vel staðsettar lóðir sem nú er unnið að því að skipuleggja með áherslu á nútímalegar íbúðir, birtugæði og græn svæði fyrir íbúa. Má í því samhengi nefna lóðir að Álfheimum 49, Nýbýlavegi 1 og í Norður-Mjódd. Upplýsingar um skipulagsvinnu fyrir Norður-Mjódd má finna á nordurmjodd.is.

Stjórn og starfsfólk Klasa þakkar viðskiptavinum, birgjum og öðrum samstarfsaðilum gott samstarf á árinu 2025 og sendir bestu óskir um velgengni á komandi ári.