Borgarhöfði

Þróun í hásæti höfuðborgar

  • 2025-2029


    Verklegar framkvæmdir
    Framkvæmdir hófust að fyrsta húsinu, Eirhöfða 8.
  • 2021-2028


    Hönnun og undirbúningur framkvæmda
    Hönnun og undirbúningur hófst árið 2021. Árið 2022 var haldin samkeppni um forhönnun torgs, nútíma skrifstofuhúsnæðis og fjölnota samkomuhúss í hjarta hins nýja hverfis.
  • 2021


    Deiliskipulag
    Nýtt deiliskipulag fyrir svæðið tók gildi árið 2022.
  • 2017


    Samstarfsyfirlýsing
    Samstarfsyfirlýsing um uppbyggingu á Ártúnshöfða vestan Breiðhöfða undirrituð þann 7. júní 2017. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík og fulltrúar lóðarhafa, þeir Ingvi Jónasson hjá Klasa og Árni Jónsson hjá Heild, skrifuðu undir. Svæðið sem samkomulagið náði til er 273.000 fermetrar og er gert ráð fyrir að þar rúmist 3.000-4.000 nýjar íbúðir.
  • 2006


    Undirbúningur
    Klasi hefur unnið að þróun og skipulagi svæðisins frá árinu 2006.
180.000
fermetrar
1.100
íbúðir
43.000
fm atvinnuhúsnæði

Borgarhöfði er nýr borgarhluti í uppbyggingu miðsvæðis í höfuðborginni. Um er að ræða blandað svæði sem afmarkast af Vesturlandsvegi, Höfðabakka og strandlínunni í vestri og norðri. Í fullbyggðum borgarhluta má reikna með að verði allt að 8.000 íbúðir og um 20.000 íbúar.

Uppbygging er þegar hafin og í borgarhlutanum eru í mars 2026 um 1.500 íbúðir. Mikill fjöldi til viðbótar er í hönnun og undirbúningi og reikna má með að um 2.300 íbúðir verði tilbúnar árið 2027.

Krossamýrartorg verður hjarta hverfisins, þar verður fjölbreytt verslun og þjónusta, skrifstofur, menningarhús á vegum Reykjavíkurborgar ásamt borgarlínustöð sem tilheyrir fyrsta áfanga. Þegar fram líður þróast hún í mikilvæga skiptistöð sem tengja um amk þrjár leiðir. Í hverfinu verða einnig leik- og grunnskólar, nýr borgargarður og afþreying. Útivistarmöguleikar verða fjölbreyttir, m.a. í Elliðaárvogi og við strandlengjuna og grænn gönguás liðast í gegnum hverfið og tengir skólana og leikvelli hverfisins. Greitt aðgengi að stofnbrautum og staðsetning við nýjan samgönguás veitir starfsfólki og íbúum möguleika á bílléttum lífsstíl.

Fá svæði á höfuðborgarsvæðinu eru jafn ákjósanleg til umbreytingar og uppbyggingar og Elliðaárvogur við Ártúnshöfða í Reykjavík. Með hliðsjón af framtíðarsýn og markmiðum gildandi svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins, þá kemur þróun þessa svæðis til með að hafa mikil almenn áhrif á borgarþróun í nánustu framtíð. Samhliða fjárfestingum á svæðinu hefur Klasi á síðustu árum unnið markvisst að þróunarhugmyndum fyrir Borgarhöfða og eru fjárfestingar félagsins til marks um hve mikla trú það hefur á svæðinu til framtíðar.

Samstarfsyfirlýsing um uppbyggingu á Ártúnshöfða vestan Breiðhöfða var undirrituð 7. júní 2017. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík og fulltrúar lóðarhafa, þeir Ingvi Jónasson hjá Klasa og Árni Jónsson hjá Heild, skrifuðu undir á einni af fjölmörgum nýjum byggingarlóðum. Svæðið sem samkomulagið nær til er 273.000 fermetrar og er gert ráð fyrir að þar rúmist 3.000-4.000 nýjar íbúðir. Fyrirsjáanlegt er að Ártúnshöfði verði eitt mesta uppbyggingarsvæðið í Reykjavík á næstu árum. Aðilar að samkomulaginu við borgina voru Heild fasteignafélag hf. fyrir hönd Árlands ehf. og Klasi ehf. fyrir hönd Borgarhöfða ehf.

Vefsíða fyrir þróunarsvæðið er https://borgarhofdi.is/

Vefmyndavélar

Útlit