Ingvi Jónasson, framkvæmdastjóri Klasa var með erindi á fundi Reykjavíkurborgar, Byggjum fyrir fólk, sem haldinn var í morgun þann 20. mars 2026 og tileinkaður var húsnæðisuppbyggingu í höfuðborginni. Borgarhöfði og uppbyggingaráform félagsins á Ártúnshöfða var umfjöllunarefni Ingva. Erindið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Í þessum nýja borgarhluta eru nú í mars 2026 um 1.500 tilbúnar íbúðir, þar að auki eru um 900 til viðbótar í hönnun. Reiknað er með að í borgarhlutanum verði alls um 7.000 íbúðir innan nokkurra ára. Klasi er með 133 íbúðir í smíðum á svæðinu og um 600 til viðbótar í hönnun og undirbúningi. Þá er félagið með töluvert af fjölbreyttu atvinnuhúsnæði í hönnun og undirbúningi.
Húsnæði Klasa er í kringum Krossamýrartorg en torgið og svæðið fékk töluverða umfjöllun á fundinum enda reiknað með að það verði hjarta hverfisins með verulegri verslun og þjónustu ásamt menningarhúsi á vegum Reykjavíkurborgar. Þá undirbýr Borgarlínan biðstöð við torgið sem verður hluti fyrsta áfanga, en þróast síðar í skiptistöð fyrir nokkrar leiðir.

