Niðurstöður könnunar Klasa á áherslum og þörfum við val á búsetu

  • 76% íbúa höfuðborgarsvæðisins finnst skipta miklu máli að í nærumhverfi sínu sé verslun og þjónusta.
  • 86% íbúa höfuðborgarsvæðisins finnst skipta miklu máli að hafa aðgengi að bílastæði við heimili sitt.
  • 82% telja birtugæði góð á sínu heimili og eingöngu 4% íbúa hafa hugleitt að flytja vegna ónógrar birtu.

Klasi þróar og skipuleggur hverfi ásamt því að byggja húsnæði og leitar því stöðugt upplýsinga um áherslur og þarfir fólks við val á búsetu. Þessi tölfræði er meðal niðurstaðna könnunar sem gerð var af Maskínu fyrir Klasa í lok nóvember 2025 sem er í í 2. skipti sem slík könnun er framkvæmd. Könnunin var lögð fyrir handahófskenndan hóp 1.156 íbúa á höfuðborgarsvæðinu.

Verslun og þjónusta í nærumhverfinu mikilvægasta atriðið

Svarendur voru beðnir að velja þau atriði sem þeim þykir mikilvægt að hafa í sínu nærumhverfi og raða þeim í mikilvægisröð. Heilt yfir þótti rúmlega helmingi svarenda mikilvægast að í nærumhverfinu væri verslun og þjónusta. Þegar skoðað er hvað fólk valdi sem eitt þriggja mikilvægustu atriðanna var verslun og þjónusta oftast valin, eða af um 76% svarenda, þá kom grunnskóli næstur (41%) og leikskóli í kjölfarið (34%). Atvinna fylgdi þar á eftir en um 30% svarenda töldu hana meðal þriggja mikilvægustu atriðanna sem vert er að hafa í sínu nærumhverfi.

Mikilvægi bílastæða eykst

85% svarenda finnst skipta miklu máli að hafa aðgengi að bílastæði við heimili sitt samanborið við 79% fyrir ári síðan. Mikilvægi bílastæða eykst með hækkandi aldri. Um 80% svarenda á aldrinum 18-29 finnst bílastæði við heimilið skipta mjög eða fremur miklu máli en í hópnum með 60 og eldri voru 92% á sömu skoðun.

Mikilvægi bílastæðisins var minnst á svæði sem samanstóð af Miðborg, Vesturbæ og Seltjarnarnesi en þar þótti 66% mjög eða fremur mikilvægt að hafa aðgengi að bílastæði við heimili sitt. Flestir vilja ekki ganga langa vegalengd að bílastæðahúsi. Flestum, eða um 46% finnst eðlilegt að bílastæðahús sé innan við 50 metra frá heimili en um 28% finnst eðlilegt að ganga allt að 100 metra.

Íbúar höfuðborgarsvæðisins eru almennt ánægðir með birtugæði heima

82% eru ánægð með birtugæði á sínu heimili og einungis 4% hafa hugleitt að flytja vegna skorts á birtu. Svarendur sem bjuggu í þriggja herbergja íbúðum og stærri voru almennt ánægðari með birtugæði heldur en þeir sem bjuggu í stúdíóíbúðum eða tveggja herbergja íbúðum. Þá eru einstaklingar á leigumarkaði óánægðari með birtugæði en aðrir.

Mikilvægustu þættirnir í mótun nýrra hverfa

Þegar skoðað var hvað þótti mikilvægast í mótun og uppbyggingu nýrra hverfa voru svarendur beðnir um að velja hvað af eftirfarandi atriðum þeim þóttu mikilvæg og að raða þeim í mikilvægisröð: hágæða almenningssamgöngur, dvalarsvæði (t.d. leiksvæði), minni þéttleiki, dagsbirta, þjónusta í göngufæri, dagsbirtugæði íbúða og nálægð við stofnbrautir. Um 59% svarenda bílastæði töldu vera eitt þriggja mikilvægustu gæðanna í nýjum hverfum, 55% völdu þjónustu í göngufæri og um 53% völdu dagsbirtugæði íbúða. Áhersla á þjónustu í göngufæri var mest meðal þeirra yngstu og minnst á meðal eldri hópsins.

Spurt var um þéttleika og voru niðurstöðurnar ólíkar milli hópa. Um helmingur svarenda 60 ára og eldri settu minni þéttleika meðal efstu þáttanna á meðan um 30% yngsta hópsins vildi draga úr þéttleika.

Mikill munur var á afstöðu til þéttleika eftir hverfum. Íbúar strjábýlli hverfa voru tvöfalt líklegri til að finnast minni þéttleiki einn þriggja mikilvægustu þátta í nýjum hverfum heldur en íbúar í þéttbýlustu hverfunum. Yfir helmingur íbúa í Grafarvogi, Grafarholti, Úlfarsárdal, Mosfellsbæ, Kjalarnesi og í Hafnarfirði voru á þeirri skoðun að þéttleiki ætti að vera minni á meðan um 24% íbúa í miðborg, Vesturbæ og Kjalarnesi voru á þeirri skoðun.

Um 53% svarenda töldu dagsbirtugæði íbúða meðal þriggja mikilvægustu þáttanna. Dagsbirtugæði íbúða voru áberandi mikilvægari í huga kvenna en karla. Um 28% kvenna settu dagsbirtugæði íbúða í fyrsta sæti og 63% setti þau í þrjú efstu sætin. Aðeins 13% karla setti dagsbirtugæði íbúða í fyrsta sæti og 44% setti þau meðal þriggja mikilvægustu þáttanna.