Ingvi Jónasson, framkvæmdastjóri Klasa, sýndi nýtt myndband um þróun íbúðauppbyggingar á Borgarhöfða á fundinum Byggjum fyrir fólk sem haldinn var á vegum Reykjavíkurborgar þann 20. mars 2026.
Á næstu árum er reiknað með að alls verði um 6.500 íbúðir í Bryggjuhverfi, á Ártúnshöfða og við Elliðaárvog.
Klasi er árið 2026 með 133 íbúðir í smíðum á svæðinu auk þess að vera með um 600 íbúðir til viðbótar í hönnun og undirbúningi. Þá undirbýr Klasi jafnframt uppbyggingu fjölbreytts verslunar- og skrifstofuhúsnæðis við Krossamýrartorg sem verður hjarta hverfisins með verslun og þjónustu ásamt menningarhúsi á vegum Reykjavíkurborgar. Bónus hefur þegar tryggt sér húsnæði við torgið og Borgarlínan undirbýr biðstöð þar sem verður hluti fyrsta áfanga, en þróast síðar í mikilvæga skiptistöð fyrir nokkrar leiðir.

