Tónlistarhús

Skipulagsverðlaunin 2006

Klasi og Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. voru þróunaraðilar og fjárfestar í samkeppni um byggingu tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar við Austurhöfn í Reykjavík. Samkeppni var um gerð deiliskipulags, hönnun tónlistarhúss og nærliggjandi bygginga sem ætlaðar voru fyrir hótel, skrifstofur og íbúðir. Enn fremur snéri verkefnið að gerð viðskiptaáætlana fyrir m.a. stofnkostnað og rekstur bygginganna. Rekstraraðili átti að reka tónlistar- og ráðstefnuhúsið með samningi við Austurhöfn hf. og gera tilboð í þann rekstur. Tillaga Klasa/Fasteignar hafnaði í öðru sæti en deiliskipulagstillagan vann skipulagsverðlaunin 2006.

Samstarfsaðilar Klasa og Eignarhaldsfélagsins Fasteignar voru Schmidt Hammer & Lassen, Arrowstreet, THG Arkitektar, Engle, Línuhönnun (Nú Efla), VSÓ og Ístak.

Sækja PDF skjal: Tónlistarhús – Hönnunartillaga.pdf