Breiðhöfði 10A
Sérsniðnar skrifstofur frá um 300 m² í um 10.000 m² nýbyggingu í hjarta Borgarhöfða.
Höfuðstöðvar eða fámennur vinnustaður?
Breiðhöfði 10A er sjö hæða skrifstofubygging með stölluðum hæðum og þaksvölum við Krossamýrartorg. Húsið er sambyggt nýju menningar- og samfélagshúsi og býður upp á skrifstofur í ýmsum stærðum með klæðskerasniðinni innanhússhönnun.
Arkitektúr hússins er sigurtillaga Hille Melbye og Sen & Son úr hönnunarsamkeppni um skrifstofubyggingu og menningarhús við Krossamýrartorg. Húsið er í hönnun.
Skrifstofur í hjarta hverfisins
Sveigjanleg rými
Rými frá um 300 m², heil hæð um 1.000–1.800 m² eða allt húsið, um 10.000 m², með klæðskerasniðinni innanhússhönnun sem lagar sig að þinni starfsemi.
Verðlaunahönnun
Sigurtillaga Hille Melbye og Sen & Son í hönnunarsamkeppni um Krossamýrartorg.
Mikill sýnileiki
Húsið er sambyggt nýju menningar- og samfélagshúsi við torgið, þar sem mannlíf, verslun og þjónusta verða við útidyrnar.
Jarðhæð fylgir – eða ekki
Verslunar- eða þjónusturými á jarðhæð má samþætta skrifstofunum.
Birta og vellíðan
Góð dagsbirta, loftgæði og hljóðvist, og möguleiki á þaksvölum og sérsniðnu innra skipulagi.
Borgargarður og menningarhús
Nýr borgargarður verður norðan við húsið og menningar- og samfélagshús við hliðina, með mannlífi, verslun og veitingum við dyrnar.
Auðvelt að komast að – á bíl, hjóli eða með strætó
Borgarhöfði er mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, á milli Laugardals, Grafarvogs og Árbæjar, og þaðan er greið leið í allar áttir. Vesturlandsvegur, Sæbraut og Reykjanesbraut eru í nokkurra mínútna fjarlægð og sjö strætóleiðir í göngufæri. Árið 2031 bætist Borgarlína við, með um 7 mínútna ferð í miðborgina.
Húsið stendur við Krossamýrartorg, þar sem verða um 900 bílastæði í opinni bílgeymslu undir torginu. Bílastæðin eru samnýtt, svo fyrirtæki nýta þau á daginn og íbúar utan hefðbundins vinnutíma.
- Bílastæði við torgið Um 900 stæði í opinni bílgeymslu undir Krossamýrartorgi, steinsnar frá inngangi.
- Eigin kjallari Auk þess verða 121 bílastæði í kjallara Breiðhöfða 10A.
- Stofnbrautir Vesturlandsvegur og Sæbraut/Reykjanesbraut eru í nokkurra mínútna fjarlægð.
- Strætó Leið 24 stoppar við Krossamýrartorg og leiðir 5, 6, 12, 15, 16 og 18 eru í um tíu mínútna göngufjarlægð.
- Borgarlína frá 2031 Tvær stöðvar í hverfinu og um 7 mínútur í miðborgina. Krossamýrartorg verður ein meginskiptistöð Borgarlínu.
Borgarhöfði – nýr borgarhluti
Breiðhöfði 10A stendur við Krossamýrartorg, í hjarta nýs borgarhluta á Ártúnshöfða þar sem verða um 8.000 íbúðir og 20.000 íbúar þegar hverfið er fullbyggt.
Viltu fá frekari upplýsingar?








