Atvinnurými til leigu
Atvinnurými á eftirsóttustu þróunarsvæðum höfuðborgarsvæðisins, við Borgarlínu, græn svæði og alla helstu þjónustu.
Fyrirtæki
Atvinnuhúsnæði til leigu
Verslunar-, veitinga- og skrifstofurými á stöðum þar sem fólkið er.
Borgarhöfði · Reykjavík
Eirhöfði 8
Tilbúið til afhendingar snemma árs 2027Tvö ný atvinnurými í nýbyggingu með 133 íbúðum á Eirhöfða 8, rétt við Krossamýrartorg. Kjörin staðsetning fyrir verslun, veitingar eða þjónustu sem vill vera fyrst á staðinn í nýju hverfi.
- Í nýju og ört vaxandi hverfi, allt að 20.000 íbúar fullbyggt
- 133 íbúðir í húsunum og nýr borgargarður við hliðina
- Krossamýrartorg og Borgarlínustöð rétt hjá
Krossamýrartorg · Reykjavík
Borgarhöfði
Skrifstofur og jarðhæðarrými fyrir verslun, veitingar og þjónustu við Krossamýrartorg, hjarta stærsta uppbyggingarsvæðis borgarinnar. Bónus er þegar tryggð kjölfestuverslun við torgið.
- Skrifstofur frá 300 m² upp í 9.000 m² (Breiðhöfði 10A og 10C)
- Verslun, veitingar og þjónusta á jarðhæð að torginu (Breiðhöfði 10B/C)
- Um 1.000 bílastæði í kjöllurum · Borgarlína frá 2031
- Hverfi sem stefnir í 20.000 íbúa
Kópavogur
Dalvegur 1
Þjónustu- og samkomukjarni við jaðar Kópavogsdals – torg með tjörn og skautasvelli, matstofa og verslunarröð sem opnast að dalnum. Fyrstu rekstraraðilar hafa áhrif á útfærslu rýmanna.
- Matstofa í gróðurhúsi við aðalinngang, um 170 m²
- Sveigjanleg rými fyrir verslun og veitingar, má sameina eða skipta upp
- Skapandi vinnurými á efri hæð og fjölnotahús
- Áætluð uppbygging 2027–2030 · strætó í innan við 200 m
Verkefnavefir
Kynntu þér hverfin og væntanlegt framboð af verslunar-, skrifstofu- og íbúðarhúsnæði.
