Þekkingarfyrirtæki í fasteignaþróun
Um Klasa
Stefna félagsins er að vera leiðandi á sviði fasteignaþróunar á Íslandi og fyrsti kostur aðila þegar leitað er eftir samstarfi.
Klasi ehf. var stofnað árið 2004 og býr yfir rúmlega tuttugu ára reynslu af þróun og uppbyggingu íbúðar-, atvinnu- og þjónustuhúsnæðis. Félagið stýrir þróun, hönnun og framkvæmdum við fasteignaverkefni og vinnur að uppbyggingu nýrra byggða, allt frá skipulagi til framkvæmda.
Við fylgjum verkefnum frá fyrstu hugmynd til skipulags, hönnunar, framkvæmda, afhendingar og sölu, bæði í eigin verkefnum og fyrir aðra aðila. Markmiðið er að þróa vistvænar og hagkvæmar lausnir fyrir borg og byggð.
Hlutverk og gildi
Markmið félagsins er að þróa vistvænar, hagkvæmar lausnir fyrir borg og byggð.
Hagkvæmni
Ábyrgur rekstur og hagkvæm uppbygging í hverju verkefni, frá greiningu til afhendingar.
Gæðaþjónusta
Náin samvinna við viðskiptavini og hagsmunaaðila skilar árangursríkum lausnum.
Jákvæð borgarþróun
Uppbygging sem bætir lífsgæði íbúa og styrkir borgarumhverfið til framtíðar.
Opin samskipti
Gagnsæi og virkt samráð við sveitarfélög, íbúa og samstarfsaðila í öllu ferlinu.
Frá hugmynd að afhendingu
Sex þrep í hverju verkefni.
Þjónusta á öllum stigum
- Þróun verkefnis og gerð framkvæmdaáætlunar
- Skipulags- og leyfismál
- Hönnunarstýring og samræming ráðgjafa
- Undirbúningur útboða og samningsgerð við verktaka
- Stýring kostnaðar, tíma og áhættu
- Framkvæmdastýring og eftirlit með verkum
- Gæðaeftirlit og úrlausn mála á framkvæmdastigi
- Sala, afhending og eftirfylgni fullgerðra eigna
Reynsla og hæfni
- Heildarábyrgð á uppbyggingu. Við leiðum verkefni frá frumhugmynd og skipulagi til fullbúinnar fasteignar og afhendingar.
- Hönnunar- og framkvæmdastýring. Við samræmum störf arkitekta, verkfræðinga, annarra ráðgjafa, verktaka og birgja.
- Samþætting þróunar og framkvæmda. Verkefni eru þróuð með hliðsjón af framkvæmdum, kostnaði, áfangaskiptingu, markaðsaðstæðum og framtíðarnotkun.
- Fjölbreyttar húsagerðir. Fjölbýlishús, atvinnuhúsnæði, verslunar- og þjónusturými, skrifstofur og sérhæfðar byggingar.
- Fjárhagsleg og viðskiptaleg yfirsýn. Tæknilegar ákvarðanir eru tengdar við kostnað, fjármögnun, sölu, útleigu og rekstur.
Fólkið á bak við verkin
Starfsmenn
Ingvi Jónasson
Framkvæmdastjóri
Framkvæmdastjóri Klasa frá 2007. Fjármálastjóri frá 2004-2007.
M.Sc. í fjármálum frá Syddansk University.
B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.
Sindri Már Kolbeinsson
Fjármálastjóri
Fjármálastjóri Klasa frá 2018. Starfaði áður við ráðgjöf og greiningu hjá Credit Suisse, PwC og Citibank í Zürich, Sviss.
M.Sc. í fjármálaverkfræði frá ETH í Zürich.
B.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.
Hildur Eggertsdóttir
Skrifstofustjóri
Sala, þjónusta og skrifstofa hjá Klasa frá 2018. Um 30 ára reynsla í þjónustu, sölu og stjórnun, lengst af hjá Íslandsbanka.
B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Bjarni Jakob Gunnarsson
Verkefnastjóri
Verkefnastjóri hjá Klasa frá 2025. Um tíu ára reynsla af hönnun og verkefnastjórnun framkvæmda. Starfaði áður hjá Isavia sem verkefnastjóri fjárfestingaverkefna.
M.Sc. Iðnaðarverkfræði frá Tækniháskólanum í Danmörku (DTU)
B.Sc. Rafmagnstæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík
Kristján Andrésson
Sviðsstjóri framkvæmdasviðs
Verkefnastjóri hjá Klasa frá 2018. Um 20 ára reynsla af hönnun og verkefnisstýringu mannvirkja. Starfaði áður hjá Verkís við hönnun og verkefnisstjórn stærri mannvirkja.
M.Sc. í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands.
Páll Kjartansson
Verkefnastjóri
Verkefnastjóri hjá Klasa frá 2021. Um 20 ára reynsla af hönnun og verkefnastýringu mannvirkja. Starfaði áður hjá Mannverk ehf. og Sveinbirni Sigurðssyni hf. við hönnun og verkefnastýringu.
B.Sc. í byggingartæknifræði frá Tækniskóla Íslands
Andri Geir Jónasson
Verkstjóri byggingarframkvæmda
Verkstjóri hjá Klasa frá 2022. Um 20 ára reynsla af störfum við verklegar framkvæmdir og mannvirkjagerð.
Löggiltur Húsasmíðameistari.
Diploma í Rekstrarfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Sólveig H. Jóhannsdóttir
Þróunarstjóri
Hóf störf hjá Klasa árið 2022. Rúmlega tíu ára reynsla af fjölbreyttum skipulags- og þróunarverkefnum.
M.Sc. í skipulagsfræði frá LbhÍ.
B.Sc í umhverfisskipulagi frá LbhÍ.
Hanna Birna Björnsdóttir
Bókhald og uppgjör
Bókhald og uppgjör hjá Klasa frá 2023. Um 25 ára reynsla af bókhaldi og fjármálastjórn.
Cand. Oecon í Viðskiptafræði frá Háskóla Íslands
Lilja Birgisdóttir
Viðskiptaþróunarstjóri
Viðskiptaþróunarstjóri hjá Klasa frá 2026.
Um 20 ára reynsla af sölu-, markaðs- og verkefnastjórnun, m.a. hjá Sjóvá, Arion banka og Sjálfstæðisflokknum.
B.Sc. í alþjóðamarkaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Sigurður Júlíus Bjarnason
Verkefnastjóri
Verkefnastjóri hjá Klasa frá 2026. Um 20 ára reynsla af störfum við verklegar framkvæmdir á undirbúnings og framkvæmdastigi. Starfaði áður við verkefnastjórn hjá Eykt ehf.
Löggiltur Húsasmíðameistari.
B.Sc í byggingartæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Stjórnarhættir
Stjórn Klasa
- Finnur Oddsson Stjórnarformaður
- Finnur R. Stefánsson
- Halldór B. Þorbergsson
- Steingrímur H. Pétursson
- Tómas Kristjánsson
- Þorvaldur Þorláksson
Eigendur
Eignarhald
Ræðum næsta verkefni
Hafðu samband og kynntu þér hvernig Klasi getur unnið með þér frá hugmynd að afhendingu.
