Silfursmári 12
Skrifstofu- og verslunarhúsnæði
Klasi hefur afhent Heimum Silfursmára 12, nýtt verslunar- og skrifstofuhús við hlið Smáralindar í Kópavogi. Húsið er um 2.400 fermetrar á fjórum hæðum, auk bílakjallara, geymslna og búningsaðstöðu. Fyrstu fyrirtækin hafa þegar flutt inn.
Klasi þróaði og reisti húsið. Markmiðið var að skapa byggingu sem styrkir götumynd Silfursmára og tengir saman almenningsrými á svæðinu. Lögð var áhersla á gróður, þakgarða og útisvæði til að fella húsið og lóðina vel að umhverfinu.
Timbur, stál og vönduð hönnun
Batteríið arkitektar hönnuðu húsið. Burðarvirkið er úr krosslímdu timbri (CLT), stáli og steypu. Stál er í bitum og súlum en timbur í kjarna, gólfum, þaki og stigum. Timbrið er sýnilegt í loftum og veggjum og gefur rýmunum hlýlegt yfirbragð. Við hönnun hússins var sérstaklega hugað að dagsbirtu, hljóðvist og loftgæðum til að skapa vandað og nútímalegt vinnuumhverfi.
Húsið er svansvottað og öll hönnun þess tók mið af kröfum vottunarinnar. Hönnunin vakti einnig athygli á HönnunarMars 2026, þar sem boðið var upp á leiðsögn um arkitektúr hússins.
„Það er ánægjulegt að sjá Silfursmára 12 kominn í notkun og hvernig húsið fellur inn í þá uppbyggingu sem hefur átt sér stað í Smáranum á undanförnum árum. Frá upphafi lögðum við áherslu á að skapa vandaða og fallega byggingu sem væri um leið hluti af lifandi svæði þar sem fólk getur búið, starfað og notið þjónustu í næsta nágrenni. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá fjölbreyttan hóp fyrirtækja velja húsið fyrir sína starfsemi,“ segir Ingvi Jónasson, framkvæmdastjóri Klasa.
Fjölbreytt starfsemi í miðju höfuðborgarsvæðisins
Á jarðhæð eru verslunar- og þjónusturými en á efri hæðum eru skrifstofur. Fyrirtæki úr ólíkum greinum hafa þegar komið sér fyrir í húsinu. Bílastæði eru bæði í kjallara og ofanjarðar.
Silfursmári 12 er hluti af víðtækari uppbyggingu í Smáranum, þar sem nýtt miðsvæði Kópavogs er að taka á sig mynd. Innan við 100 metrar eru að heilsugæslu og Smáralind, stærstu verslunarmiðstöð landsins. Þar eru um 100 rekstraraðilar sem bjóða upp á verslun, veitingar og afþreyingu. Svæðið er vel tengt stofnbrautum höfuðborgarsvæðisins og auðvelt er að komast þangað með fjölbreyttum samgöngumátum.
- Lóð: 2.650 m2.
- Hús án bílakjallara: 2.400 m2.
Allar nánari upplýsingar veita Heimar, sjá hér.
