Mjódd

Ný blönduð byggð í Norður-Mjódd

  • 2010
    Þróunarsvæði
    Norður-Mjódd skilgreind sem þróunarsvæði í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010.
  • 2022
    Deiliskipulagsvinna hefst
    Klasi hefur unnið að deiliskipulagi Norður-Mjóddar í góðu samráði við Reykjavíkurborg frá árinu 2022.
  • 2023
    Skipulagslýsing
    Skipulagslýsing, byggð á stefnu aðalskipulags Reykjavíkur, var auglýst.
  • 2025
    Samráð við íbúa
    Klasi tók saman niðurstöður könnunar um væntingar og óskir íbúa og hagsmunaaðila til uppbyggingar svæðisins.
27.000
fermetra skipulagssvæði
4–7
hæða hús
3
svæði: A, B og C
5 mín.
gangur í Elliðaárdal

Klasi vinnur að skipulagningu blandaðrar byggðar í Norður-Mjódd. Þar verður gott aðgengi að verslun, þjónustu, stofnbrautum og útivistarsvæðinu í Elliðaárdal, sem er aðeins í um fimm mínútna göngufæri.

Norður-Mjódd var skilgreind sem þróunarsvæði í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010. Þar sem Garðheimar, bensínafgreiðsla og bílasala voru áður rís ný byggð sem styður verslun og þjónustu í hverfinu og eflir hverfisandann. Markmiðið er að skapa grundvöll fyrir fjölbreytt mannlíf, ekki síst fyrir þá sem vilja minnka eða stækka við sig innan Breiðholts og búa í nútímalegu húsnæði með alla helstu þjónustu í göngufjarlægð.

Áherslur

  • Fjölbreyttar íbúðir af ólíkum stærðum sem henta mismunandi lífsskeiðum og fjölskyldumynstri.
  • Vel tengt fyrir alla ferðamáta. Biðstöð Borgarlínu verður við Stekkjarbakka og gott aðgengi er að stígakerfi og stofnbrautum.
  • Blágrænar ofanvatnslausnir sem styðja náttúrulega hringrás vatns.
  • Sólrík og skjólgóð dvalarsvæði fyrir alla aldurshópa.
  • Frá leikskóla að hjúkrunarheimili. Í skipulagsvinnunni er gert ráð fyrir heimild fyrir hvoru tveggja.

Skipulagið

Skipulagssvæðið er um 27 þúsund fermetrar og liggur meðfram Reykjanesbraut, á milli Stekkjarbakka og Álfabakka. Því er skipt í þrjú svæði. Á svæði A, næst Mjódd, er áhersla á atvinnuhúsnæði, meðal annars matvöruverslun, með íbúðum á efri hæðum. Á svæði B verða að mestu íbúðir með einhverri þjónustu, meðal annars möguleika á leikskóla, og á svæði C íbúðarbyggð. Gert er ráð fyrir 4–7 hæða húsum, hæstum næst Reykjanesbraut, sem bætir hljóðvist í inngörðum.

Stefnt er að því að deiliskipulagið verði BREEAM Communities-vottað. Klasi er eigandi lóðarréttinda á svæðinu. Skipulagsráðgjafar eru JVST, Landslag, Efla og Örugg verkfræðistofa.

Nánari upplýsingar og fréttir af verkefninu má finna á nordurmjodd.is.