Eldshöfði 4-6
Um 220 íbúðir frábærlega staðsettar rétt við Krossamýrartorg, Borgarlínustöð og nýjan almenningsgarð á Borgarhöfða.
Klasi vinnur nú að hönnun um 220 íbúða við Eldshöfða 4-6. Staðsetningin er yfirburða góð. Krossamýrartorg er handan götunnar með fjölbreytta verslun og þjónustu. Þar verður einnig menningarhús á vegum Reykjavíkurborgar og Borgarlínustöð í fyrsta áfanga sem síðar þróast yfir í skiptistöð fyrir nokkrar leiðir.
Nýr almenningsgarður er fyrirhugaður vestan við húsið og mun hluti íbúða njóta útsýnis yfir hann. Aðalhönnuðir húsanna eru Tendra arkitektúr. Lóðahönnun er á vegum Landslags.
