Borgarhöfði

Þróun í hásæti höfuðborgar

  • 2021-2028


    FRAMKVÆMDIR
    Áætlað er að hönnun og undirbúningur framkvæmda hefjist árið 2022
  • 2021


    DEILISKIPULAG
    Nýtt deiliskipulag auglýst fyrir svæðið
  • 2017


    SAMSTARFSYFIRLÝSING
    Klasi ehf. ásamt Reykjavíkurborg og Heild fasteignafélagi hf. undirrita yfirlýsingu um uppbyggingu á þróunarsvæðinu.
  • 2006-2020


    UNDIRBÚNINGUR
    Klasi hefur unnið að þróun og skipulagi svæðisins frá árinu 2006
180.000
fermetrar
1100
íbúðir
43.000
fm atvinnuhúsnæði

Fá svæði á höfuðborgarsvæðinu eru jafn ákjósanleg til umbreytingar og uppbyggingar og Elliðaárvogur við Ártúnshöfða í Reykjavík. Með hliðsjón af framtíðarsýn og markmiðum gildandi svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins, þá kemur þróun þessa svæðis til með að hafa mikil almenn áhrif á borgarþróun í nánustu framtíð. Samhliða fjárfestingum á svæðinu hefur Klasi á síðustu árum unnið markvisst að þróunarhugmyndum fyrir Borgarhöfða og eru fjárfestingar félagsins til marks um hve mikla trú það hefur á svæðinu til framtíðar.

Samstarfsyfirlýsing um uppbyggingu á Ártúnshöfða vestan Breiðhöfða var undirrituð 7. júní 2017. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík og fulltrúar lóðarhafa, þeir Ingvi Jónasson hjá Klasa og Árni Jónsson hjá Heild, skrifuðu undir á einni af fjölmörgum nýjum byggingarlóðum. Svæðið sem samkomulagið nær til er 273.000 fermetrar og er gert ráð fyrir að þar rúmist 3.000-4.000 nýjar íbúðir. Fyrirsjáanlegt er að Ártúnshöfði verði eitt mesta uppbyggingarsvæðið í Reykjavík á næstu árum. Aðilar að samkomulaginu við borgina eru Heild fasteignafélag hf. fyrir hönd Árlands ehf. og Klasi ehf. fyrir hönd Borgarhöfða ehf.

Vefsíða fyrir þróunarsvæðið er https://borgarhofdi.is/

Vefmyndavél