Skrifstofur til leigu við Krossamýrartorg

Breiðhöfði 10A

Sérsniðnar skrifstofur frá um 300 m² í um 10.000 m² nýbyggingu í hjarta Borgarhöfða.

Húsið

Höfuðstöðvar eða fámennur vinnustaður?

Breiðhöfði 10A er sjö hæða skrifstofubygging með stölluðum hæðum og þaksvölum við Krossamýrartorg. Húsið er sambyggt nýju menningar- og samfélagshúsi og býður upp á skrifstofur í ýmsum stærðum með klæðskerasniðinni innanhússhönnun.

Arkitektúr hússins er sigurtillaga Hille Melbye og Sen & Son úr hönnunarsamkeppni um skrifstofubyggingu og menningarhús við Krossamýrartorg. Húsið er í hönnun.

300+m² minnsta leigurými
1.000–1.800m² heil hæð
10.000m² allt húsið
7hæðir með þaksvölum
~900bílastæði undir torginu
2031Borgarlína við torgið
Kostir

Skrifstofur í hjarta hverfisins

Sveigjanleg rými

Rými frá um 300 m², heil hæð um 1.000–1.800 m² eða allt húsið, um 10.000 m², með klæðskerasniðinni innanhússhönnun sem lagar sig að þinni starfsemi.

Verðlaunahönnun

Sigurtillaga Hille Melbye og Sen & Son í hönnunarsamkeppni um Krossamýrartorg.

Mikill sýnileiki

Húsið er sambyggt nýju menningar- og samfélagshúsi við torgið, þar sem mannlíf, verslun og þjónusta verða við útidyrnar.

Jarðhæð fylgir – eða ekki

Verslunar- eða þjónusturými á jarðhæð má samþætta skrifstofunum.

Birta og vellíðan

Góð dagsbirta, loftgæði og hljóðvist, og möguleiki á þaksvölum og sérsniðnu innra skipulagi.

Borgargarður og menningarhús

Nýr borgargarður verður norðan við húsið og menningar- og samfélagshús við hliðina, með mannlífi, verslun og veitingum við dyrnar.

Bílastæði og samgöngur

Auðvelt að komast að – á bíl, hjóli eða með strætó

Borgarhöfði er mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, á milli Laugardals, Grafarvogs og Árbæjar, og þaðan er greið leið í allar áttir. Vesturlandsvegur, Sæbraut og Reykjanesbraut eru í nokkurra mínútna fjarlægð og sjö strætóleiðir í göngufæri. Árið 2031 bætist Borgarlína við, með um 7 mínútna ferð í miðborgina.

Húsið stendur við Krossamýrartorg, þar sem verða um 900 bílastæði í opinni bílgeymslu undir torginu. Bílastæðin eru samnýtt, svo fyrirtæki nýta þau á daginn og íbúar utan hefðbundins vinnutíma.

~900bílastæði undir Krossamýrartorgi
7strætóleiðir í göngufæri
2031Borgarlína við torgið
Borgarhöfði – miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinuLaugardalurGrafarvogurBorgarhöfðiVesturlandsvegurFossvogsdalur

Borgarhöfði er miðsvæðis, á milli Laugardals, Grafarvogs og Fossvogsdals, við Vesturlandsveg.

  • Bílastæði við torgið Um 900 stæði í opinni bílgeymslu undir Krossamýrartorgi, steinsnar frá inngangi.
  • Eigin kjallari Auk þess verða 121 bílastæði í kjallara Breiðhöfða 10A.
  • Stofnbrautir Vesturlandsvegur og Sæbraut/Reykjanesbraut eru í nokkurra mínútna fjarlægð.
  • Strætó Leið 24 stoppar við Krossamýrartorg og leiðir 5, 6, 12, 15, 16 og 18 eru í um tíu mínútna göngufjarlægð.
  • Borgarlína frá 2031 Tvær stöðvar í hverfinu og um 7 mínútur í miðborgina. Krossamýrartorg verður ein meginskiptistöð Borgarlínu.
Myndasafn

Myndir

Yfirlit yfir Krossamýrartorg – Sen & SonSkrifstofurými – Sen & SonSameiginlegt rými á 2. hæðÚtsýni frá millisvölumMenningarhúsið við KrossamýrartorgMenningarhúsið – Sen & Son

Hönnun á vinnslustigi. Myndir geta breyst.

Hverfið

Borgarhöfði – nýr borgarhluti

Breiðhöfði 10A stendur við Krossamýrartorg, í hjarta nýs borgarhluta á Ártúnshöfða þar sem verða um 8.000 íbúðir og 20.000 íbúar þegar hverfið er fullbyggt.

Breiðhöfði 10A, 10B og 10C við KrossamýrartorgStaðsetning húsanna við Krossamýrartorg. Hönnun á vinnslustigi.
Hafðu samband

Viltu fá frekari upplýsingar?

Ingvi Jónasson

Ingvi JónassonFramkvæmdastjóriingvi@klasi.is891 7601
Lilja Birgisdóttir

Lilja BirgisdóttirViðskiptaþróunarstjórililja@klasi.is779 3002
Spurningar og svör

Algengar spurningar

Hvaða stærðir eru í boði?
Húsið er um 10.000 m² á sjö hæðum og hver hæð er um 1.000 til 1.800 m². Rými eru til leigu frá um 300 m², og hægt er að leigja hluta hæðar, heila hæð eða allt húsið.
Get ég haft áhrif á innra skipulag?
Já. Húsið er í hönnun og innanhússhönnun verður klæðskerasniðin að starfsemi leigutaka.
Fylgir jarðhæð?
Verslunar- eða þjónusturými á jarðhæð má samþætta skrifstofum ef það hentar starfseminni.
Hver eru leigukjörin?
Leigukjör ráðast af stærð, frágangi og leigutíma. Hafðu samband og við förum yfir möguleikana með þér.