Verslun og veitingar við Krossamýrartorg

Breiðhöfði 10B

Nýbygging í hönnun með verslunar-, veitinga- og þjónusturýmum á jarðhæð sem snúa að Krossamýrartorgi.

Húsið

Rými sem snúa að torginu

Í Breiðhöfða 10B verða fjölbreyttar stærðir verslunar-, veitinga- og þjónusturýma á jarðhæð sem snúa ýmist að Krossamýrartorgi eða að Breiðhöfða. Um 1.700 m² á jarðhæð má skipta í einingar frá um 300 m², sniðnar að starfseminni.

Bónus verður í um 1.900 m² rými í kjallara hússins, 264 íbúðir eru í hönnun á efri hæðum 10B og 10C, og vegna landhalla verður innangengt beint úr efsta bílakjallara að verslunarrýmum.

1.700m² á jarðhæð, frá um 300 m²
1.900m² Bónus í kjallara
~900bílastæði undir torginu
20.000íbúar í fullbyggðu hverfi
Kostir

Sterkur grunnur fyrir rekstur

Veitingar við torgið

Veitingahúsnæði við Krossamýrartorg þar sem menningarhús, borgargarður, verslanir og líkamsrækt styðja við reksturinn.

Verslun og þjónusta

Rými fyrir þjónustu og sérvöru í einstakri miðlægri staðsetningu, þar sem 20.000 íbúa borgarhluti stendur undir fjölda verslana.

Sniðið að starfseminni

Skipting rýma og innra skipulag tekur mið af starfsemi og leigutaki getur unnið að hönnun síns rýmis.

Öflugur rekstrargrundvöllur

Hverfi á stærð við Akureyri eða Garðabæ og mikill fjöldi vinnustaða í nágrenninu.

Aðgengi og vörumóttaka

Aðgengi fyrir alla, skilvirk bakrými og góð vörumóttaka, auk vörumóttökustæða á yfirborði.

Bónus í húsinu

Bónus hefur tryggt sér rými á norðurhlið hússins, sem skapar stöðuga umferð viðskiptavina.

Bílastæði og samgöngur

Auðvelt að komast að – á bíl, hjóli eða með strætó

Borgarhöfði er mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, á milli Laugardals, Grafarvogs og Árbæjar, og þaðan er greið leið í allar áttir. Vesturlandsvegur, Sæbraut og Reykjanesbraut eru í nokkurra mínútna fjarlægð og sjö strætóleiðir í göngufæri. Árið 2031 bætist Borgarlína við, með um 7 mínútna ferð í miðborgina.

Húsið stendur við Krossamýrartorg, þar sem verða um 900 bílastæði í opinni bílgeymslu undir torginu. Bílastæðin eru samnýtt, svo fyrirtæki nýta þau á daginn og íbúar utan hefðbundins vinnutíma.

~900bílastæði undir Krossamýrartorgi
7strætóleiðir í göngufæri
2031Borgarlína við torgið
Borgarhöfði – miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinuLaugardalurGrafarvogurBorgarhöfðiVesturlandsvegurFossvogsdalur

Borgarhöfði er miðsvæðis, á milli Laugardals, Grafarvogs og Fossvogsdals, við Vesturlandsveg.

  • Bílastæði við torgið Um 900 stæði í opinni bílgeymslu undir Krossamýrartorgi, steinsnar frá inngangi.
  • Beint úr kjallara Vegna landhalla verður innangengt beint úr efsta bílakjallara að verslunarrýmum og lyftur upp á torgið úr neðri kjöllurum.
  • Vörumóttaka Vörumóttökustæði og bílastæði á yfirborði.
  • Stofnbrautir Vesturlandsvegur og Sæbraut/Reykjanesbraut eru í nokkurra mínútna fjarlægð.
  • Strætó Leið 24 stoppar við Krossamýrartorg og leiðir 5, 6, 12, 15, 16 og 18 eru í um tíu mínútna göngufjarlægð.
  • Borgarlína frá 2031 Tvær stöðvar í hverfinu og um 7 mínútur í miðborgina. Krossamýrartorg verður ein meginskiptistöð Borgarlínu.
Myndasafn

Myndir

Yfirbyggð göngugata með verslunumInngangur að BónusVerslunarrými á jarðhæðVerslanir við BreiðhöfðaMatarmarkaður á jarðhæðBreiðhöfði 10B og 10C

Hönnun á vinnslustigi. Myndir geta breyst.

Hverfið

Borgarhöfði – nýr borgarhluti

Breiðhöfði 10B stendur við Krossamýrartorg, í hjarta nýs borgarhluta á Ártúnshöfða þar sem verða um 8.000 íbúðir og 20.000 íbúar þegar hverfið er fullbyggt.

Breiðhöfði 10A, 10B og 10C við KrossamýrartorgStaðsetning húsanna við Krossamýrartorg. Hönnun á vinnslustigi.
Hafðu samband

Viltu fá frekari upplýsingar?

Ingvi Jónasson

Ingvi JónassonFramkvæmdastjóriingvi@klasi.is891 7601
Lilja Birgisdóttir

Lilja BirgisdóttirViðskiptaþróunarstjórililja@klasi.is779 3002
Spurningar og svör

Algengar spurningar

Hvaða rými eru í boði?
Um 1.700 m² af verslunar-, veitinga- og þjónusturýmum á jarðhæð, í einingum frá um 300 m².
Hvert snúa rýmin?
Rýmin snúa ýmist að Krossamýrartorgi eða að Breiðhöfða.
Hvernig er vörumóttaka?
Bakrými verða skilvirk og aðgengi gott fyrir vörur, með vörumóttökustæðum á yfirborði.
Hver eru leigukjörin?
Leigukjör ráðast af stærð, frágangi og leigutíma. Hafðu samband og við förum yfir möguleikana með þér.