Skrifstofur og verslun við Krossamýrartorg

Breiðhöfði 10C

Nýbygging í hönnun með skrifstofum á 2. til 5. hæð og verslunar- og þjónusturýmum á jarðhæð.

Húsið

Skrifstofur í hjarta hverfisins

Í Breiðhöfða 10C verða skrifstofur frá 415 til 700 m² á 2. til 5. hæð, í nýju húsnæði sniðnu að nýrri starfsemi. Alls eru um 2.300 m² af skrifstofum á fjórum hæðum. Á jarðhæð verða um 2.000 m² af verslunar- og þjónusturýmum, í einingum frá um 300 m², sem snúa að Breiðhöfða og torginu.

Veitingar, líkamsrækt, verslun og mannlíf verða í aðliggjandi húsum við Krossamýrartorg.

415–700m² skrifstofur
2.–5.hæð skrifstofa
~900bílastæði undir torginu
2031Borgarlína við torgið
Kostir

Skrifstofur við torgið

Skrifstofur 415–700 m²

Skrifstofur á 2. til 5. hæð í nýju húsnæði sniðnu að nýrri starfsemi.

Verslun á jarðhæð

Verslunar- og þjónusturými á jarðhæð sem snúa að Breiðhöfða og Krossamýrartorgi.

Þjónusta við dyrnar

Veitingar, líkamsrækt, verslun og mannlíf í aðliggjandi húsum við torgið.

Öflugur rekstrargrundvöllur

Hverfi á stærð við Akureyri eða Garðabæ og mikill fjöldi vinnustaða í nágrenninu.

Sniðið að starfseminni

Leigutaki getur haft áhrif á innra skipulag og hönnun rýmisins.

Bónus við torgið

Bónus hefur tryggt sér rými við Krossamýrartorg, sem skapar stöðuga umferð um svæðið.

Bílastæði og samgöngur

Auðvelt að komast að – á bíl, hjóli eða með strætó

Borgarhöfði er mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, á milli Laugardals, Grafarvogs og Árbæjar, og þaðan er greið leið í allar áttir. Vesturlandsvegur, Sæbraut og Reykjanesbraut eru í nokkurra mínútna fjarlægð og sjö strætóleiðir í göngufæri. Árið 2031 bætist Borgarlína við, með um 7 mínútna ferð í miðborgina.

Húsið stendur við Krossamýrartorg, þar sem verða um 900 bílastæði í opinni bílgeymslu undir torginu. Bílastæðin eru samnýtt, svo fyrirtæki nýta þau á daginn og íbúar utan hefðbundins vinnutíma.

~900bílastæði undir Krossamýrartorgi
7strætóleiðir í göngufæri
2031Borgarlína við torgið
Borgarhöfði – miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinuLaugardalurGrafarvogurBorgarhöfðiVesturlandsvegurFossvogsdalur

Borgarhöfði er miðsvæðis, á milli Laugardals, Grafarvogs og Fossvogsdals, við Vesturlandsveg.

  • Bílastæði við torgið Um 900 stæði í opinni bílgeymslu undir Krossamýrartorgi, steinsnar frá inngangi.
  • Stofnbrautir Vesturlandsvegur og Sæbraut/Reykjanesbraut eru í nokkurra mínútna fjarlægð.
  • Strætó Leið 24 stoppar við Krossamýrartorg og leiðir 5, 6, 12, 15, 16 og 18 eru í um tíu mínútna göngufjarlægð.
  • Borgarlína frá 2031 Tvær stöðvar í hverfinu og um 7 mínútur í miðborgina. Krossamýrartorg verður ein meginskiptistöð Borgarlínu.
Myndasafn

Myndir

Verslanir á jarðhæð við BreiðhöfðaYfirbyggð göngugata með verslunumHúsin við KrossamýrartorgInngangur að BónusBreiðhöfði 10B og 10C – suðurhliðKrossamýrartorg

Hönnun á vinnslustigi. Myndir geta breyst.

Hverfið

Borgarhöfði – nýr borgarhluti

Breiðhöfði 10C stendur við Krossamýrartorg, í hjarta nýs borgarhluta á Ártúnshöfða þar sem verða um 8.000 íbúðir og 20.000 íbúar þegar hverfið er fullbyggt.

Breiðhöfði 10A, 10B og 10C við KrossamýrartorgStaðsetning húsanna við Krossamýrartorg. Hönnun á vinnslustigi.
Hafðu samband

Viltu fá frekari upplýsingar?

Ingvi Jónasson

Ingvi JónassonFramkvæmdastjóriingvi@klasi.is891 7601
Lilja Birgisdóttir

Lilja BirgisdóttirViðskiptaþróunarstjórililja@klasi.is779 3002
Spurningar og svör

Algengar spurningar

Hvaða stærðir eru í boði?
Skrifstofur frá 415 til 700 m² á 2. til 5. hæð, og um 2.000 m² af verslunar- og þjónusturýmum á jarðhæð, í einingum frá um 300 m².
Get ég haft áhrif á innra skipulag?
Já. Húsið er í hönnun og innra skipulag verður sniðið að starfsemi leigutaka.
Hvaða þjónusta er í nágrenninu?
Veitingar, líkamsrækt, Bónus, menningarhús og borgargarður við Krossamýrartorg.
Hver eru leigukjörin?
Leigukjör ráðast af stærð, frágangi og leigutíma. Hafðu samband og við förum yfir möguleikana með þér.