Eirhöfði 8
Tvö ný atvinnurými í hjarta nýs borgarhluta. Tilbúin til afhendingar snemma árs 2027.
Vertu fyrst á staðinn
Á Eirhöfða 8 rísa þrjú hús með 133 íbúðum og tveimur atvinnurýmum á jarðhæð. Rýmin henta vel fyrir verslun, veitingar eða þjónustu sem vill þjóna nýju og ört vaxandi hverfi frá fyrsta degi.
Húsið stendur rétt við Krossamýrartorg, miðju Borgarhöfða, þar sem byggt verður upp blómlegt mannlíf með verslunum, veitingum og þjónustu.
Staðsetning sem vinnur með þér
Afhending snemma árs 2027
Rýmin verða tilbúin til afhendingar snemma árs 2027, um leið og nýtt hverfi tekur að fyllast af lífi.
Við Krossamýrartorg
Rétt við Krossamýrartorg, miðju Borgarhöfða, þar sem Bónus hefur þegar tryggt sér pláss. Gert er ráð fyrir fjölbreyttri þjónustu við torgið, til dæmis bakaríi og kaffihúsum.
Nálægð við viðskiptavini
133 íbúðir eru í húsunum sjálfum. Á Borgarhöfða verða um 8.000 íbúðir og 20.000 íbúar þegar hverfið er fullbyggt, og nú þegar eru 1.585 íbúðir tilbúnar eða í byggingu.
Staðsetning
Mjög miðsvæðis, á miðjum samgönguási höfuðborgarsvæðisins, með Árbæ og Grafarvog í næsta nágrenni. Fullbyggt verður hverfið álíka fjölmennt og Akureyri.
Samgöngur
Sjö strætóleiðir í göngufæri, tvær Borgarlínustöðvar í hverfinu og um 7 mínútur í miðborgina með fyrstu lotu Borgarlínu. Greiðfært á Vesturlandsveg, Sæbraut og Höfðabakka.
Bílastæði og útivist
Um 1.000 bílastæði í opnum kjallara undir Krossamýrartorgi og nýr borgargarður á stærð við Austurvöll við hlið hússins.
Borgarhöfði – nýr borgarhluti
Eirhöfði 8 stendur við Krossamýrartorg, í miðju nýs borgarhluta á Ártúnshöfða þar sem verða um 8.000 íbúðir og 20.000 íbúar.
Eirhöfði 8, 110 Reykjavík

Viltu fá frekari upplýsingar eða bóka skoðun?




