Dalvegur 1
Nýtt hlið að Kópavogsdal, þar sem náttúra og mannlíf mætast
Fullt hús ævintýra
Á Dalvegi 1 er að rísa þjónustukjarni sem nýtur sérstöðu sinnar við stærsta græna svæði Kópavogs. Húsin snúa baki í umferðina og opnast að dalnum, þar sem landsmenn stunda útivist allt árið.
Kjarninn hýsir torg, matstofu, verslanir og skapandi vinnurými og miðar að því að verða nýr áfangastaður íbúa — allt árið um kring.
Af hverju Dalvegur 1?

Hugmyndafræðin: byggð og dalur sem ein heild
Tendra arkitektúr hannar svæðið út frá þeirri hugmynd að byggðin og dalurinn myndi eina heild. Lágreist byggð er hugsuð til að veita skjól frá umferð á Dalvegi og opnast jafnframt í átt að dalnum. Torg í miðju svæðisins gæti orðið lifandi samkomustaður.
Áhersla er lögð á að skapa aðstæður fyrir fjölbreytta starfsemi og útiveru, ásamt góðum göngu- og hjólatengingum við dalinn. Við hönnunina er horft til sjálfbærra lausna og vandaðs efnisvals. Endanleg útfærsla svæðisins er enn í mótun.
Svæðið: torg, matstofa og verslunarröð
Þegar gengið er inn á svæðið að austan er matstofan það fyrsta sem blasir við. Þar geta gestir fengið sér kaffi eða hádegismat og hlustað á tónleika. Útisvæði matstofunnar opnast að torginu, tjörninni og leiksvæðinu.
Í miðjunni er torgið sjálft: tjörn sem verður skautasvell á veturna, markaðsbásar og viðburðasvæði. Samfelld röð húsa snýr að torginu og dalnum, þar sem verslanir og veitingar geta fært sig út á markaðstorgið á góðviðrisdögum.
Utan við torgið tekur dalurinn við með náttúruleik, sleðabrekku, skólagörðum og grillaðstöðu allt árið. Næg bílastæði eru á svæðinu, með aðkomu frá Laufástorgi.
Hugmyndir að starfsemi
Verkefnið er á hönnunarstigi og mótast í samstarfi við þau sem velja að reka starfsemi á svæðinu. Meðal hugmynda sem eru til skoðunar eru blómabúð, ísbúð og kaffihús, sérvöruverslanir með áherslu á útivist og hönnun, heilsurækt og jóga, golfhermar, hlaðvarps- og myndver, vinnurými fyrir efnissköpun og samverurými fyrir eldri borgara. Slík starfsemi gæti haldið torginu lifandi utan hefðbundins verslunartíma.
Tímalína verkefnisins
Áætluð tímalína sem uppfærist eftir því sem verkefninu vindur fram.
Frá fyrsta samtali til opnunar
Fimm skref – og við fylgjum ykkur alla leið.





