Dvergshöfði 4
14 þúsund fermetra vönduð skrifstofubygging
Dvergshöfði 4 er staðsteypt 7 hæða um 14.000 fermetra skrifstofubygging. Glerfrontur er á öllum hliðum með inndreginni 7. hæð. Húsið er reist í samræmi við BREEAM staðal fyrir nýbyggingar.
Staðsetning hússins er frábær, í aðeins um 3ja til 4ra mínútna göngufjarlægð frá Krossamýrartorgi. Krossamýrartorg er hjarta Borgarhöfða, nýs borgarhluta sem nú er í uppbyggingu á Ártúnshöfða. Borgarhöfði er stærsta íbúðauppbyggingarsvæði Reykjavíkur en áætlað er að í fullbyggðum hverfishluta verði um 8.000 íbúðir og að íbúar verði um 20 þúsund. Á svæðinu verður einnig töluvert af nýju atvinnuhúsnæði, verslun og þjónustu auk þess sem áform eru um uppbyggingu þriggja nýrra grunnskóla, hjúkrunarheimilis og menningarhúss.
Framkvæmdir við Dvergshöfða 4 hófust fyrir um 16 árum, bílakjallari og jarðhæð voru steypt upp eftir aðaluppdráttum dagsettum 15. desember 2006 en framkvæmdir voru stöðvaðar á haustmánuðum 2008. Klasi hefur nú tekið að sér að klára framkvæmdir fyrir Heima, sem keyptu bygginguna árið 2022.
Heimar efndu til hönnunarsamkeppni um nýbyggingu á Dvergshöfða 4 þar sem svissneska arkitektastofan Kunz und Mösch var með vinnings tillöguna.

