Tjarnarvellir 5
Atvinnulóð á Völlunum í Hafnarfirði
Atvinnulóð á Völlunum
Tjarnarvellir 5 er 2.647,9 m² atvinnulóð á Völlunum í Hafnarfirði. Lóðin er á miðsvæði þar sem gert er ráð fyrir atvinnustarfsemi og heimil nýting hennar er 2,0. Heimilt byggingarmagn er allt að 5.550 m², með fyrirvara um endanlega skilmála.
Staðsetning
Lóðin stendur við Tjarnarvelli 5 á Völlunum í Hafnarfirði. Við götuna eru meðal annars hótel (Tjarnarvellir 3) og líkamsræktarstöð (Tjarnarvellir 7), sem skapar stöðugan straum gesta og viðskiptavina í næsta nágrenni. Þá eru höfuðstöðvar Icelandair, eins stærsta vinnustaðar landsins, í nágrenninu.
Skipulag
Lóðin er innan gildandi deiliskipulags, „Deiliskipulag Valla, miðsvæði“, og fellur undir skilgreint miðsvæði í Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013–2025. Skilmálar fyrir lóðina eru aðgengilegir á Skipulagsvefsjá.
