Silfursmári 12 hlýtur Grænu skófluna 2026

Á myndinni eru, frá vinstri: Hákon Ingi Sveinbjörnsson og Sigurður Einarsson, arkitektar og meðeigendur hjá Batteríinu arkitektum, Kristján Andrésson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs Klasa, María Rúnarsdóttir, forstöðumaður sjálfbærni hjá Heimum, Birgir Guðmundsson, verkefnastjóri fjárfestinga hjá Heimum, og Sólveig H. Jóhannsdóttir, þróunarstjóri Klasa.

Á myndinni eru, frá vinstri: Hákon Ingi Sveinbjörnsson og Sigurður Einarsson, arkitektar og meðeigendur hjá Batteríinu arkitektum, Kristján Andrésson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs Klasa, María Rúnarsdóttir, forstöðumaður sjálfbærni hjá Heimum, Birgir Guðmundsson, verkefnastjóri fjárfestinga hjá Heimum, og Sólveig H. Jóhannsdóttir, þróunarstjóri Klasa.

Silfursmári 12, sem Klasi þróaði og byggði við Smáralind í Kópavogi, hefur hlotið Grænu skófluna 2026 í flokki nýbygginga. Viðurkenningin er veitt af Grænni byggð og hlaut húsið hana fyrir heildstæða nálgun að sjálfbærni, gæðum og notagildi.

Viðurkenningin er ánægjuleg staðfesting á þeirri áherslu sem Klasi leggur á vandaða og sjálfbæra fasteignaþróun. Frá upphafi var markmiðið að skapa byggingu sem styrkir götumynd Silfursmára og fellur vel að umhverfi sínu.

Sjálfbærni og notagildi í fyrirrúmi

Silfursmári 12 er verslunar- og skrifstofuhús á fjórum hæðum ásamt bílakjallara, alls um 3.500 fermetrar. Við hönnun hússins var lögð áhersla á góða dagsbirtu, loftgæði og hljóðvist, ásamt sveigjanlegum rýmum sem geta aðlagast breyttum þörfum notenda. Gróður, þakgarðar og útisvæði voru jafnframt mikilvægur hluti af mótun húss og lóðar.

Batteríið arkitektar hönnuðu húsið. Burðarvirkið er blönduð lausn úr krosslímdu timbri (CLT), stáli og steypu. Sýnilegt timbur í loftum og veggjum gefur rýmunum hlýlegt yfirbragð og er einkennandi fyrir bygginguna.

Hönnun hússins tekur mið af viðmiðum Svansins, opinbers umhverfismerkis Norðurlandanna, sem gerir strangar kröfur meðal annars um orkunýtingu, byggingarefni, innivist og rakavarnir á byggingartíma. Húsið var einnig kynnt á HönnunarMars 2026, þar sem gestum bauðst leiðsögn um arkitektúr þess.

„Það er mikill heiður fyrir okkur og alla sem komu að verkinu að Silfursmári 12 hljóti Grænu skófluna. Viðurkenningin endurspeglar það góða samstarf sem hönnuðir, ráðgjafar og verktakar áttu í verkefninu. Það er líka ánægjulegt að sjá Silfursmára 12 kominn í notkun og hvernig húsið fellur inn í þá uppbyggingu sem hefur átt sér stað í Smáranum á undanförnum árum,“ segir Kristján Andrésson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs Klasa.

Hluti af uppbyggingu í Smáranum

Silfursmári 12 er hluti af víðtækari uppbyggingu Klasa í Smáranum, þar sem íbúðir, atvinnustarfsemi og þjónusta mynda saman lifandi umhverfi. Húsið er vel tengt þjónustu, gönguleiðum og fjölbreyttum samgöngumátum.

Húsið hefur verið afhent Heimum og fyrstu fyrirtækin eru þegar flutt inn. Á jarðhæð eru verslunar- og þjónusturými en skrifstofur á efri hæðum, þar á meðal skrifstofur Klasa.

Klasi óskar öllum hönnuðum, ráðgjöfum, verktökum og öðrum samstarfsaðilum sem komu að Silfursmára 12 innilega til hamingju með Grænu skófluna og þakkar fyrir metnaðarfullt og farsælt samstarf.