Klasi í hópi 25 efstu fyrirmyndarfyrirtækja landsins

Silfursmári 12

Klasi er í 22. sæti á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026 og skipar jafnframt 22. sæti í flokki stórra fyrirtækja. Alls eru 1.780 fyrirtæki á listanum í ár, fleiri en nokkru sinni fyrr, eða um 5,4% fyrirtækja á Íslandi.

Fyrirtæki á listanum þurfa að uppfylla ströng skilyrði um afkomu og fjárhagsstöðu. Afkoma þarf að hafa verið jákvæð bæði rekstrarárin 2024 og 2025, tekjur yfir 50 milljónum króna og eignir yfir 90 milljónum króna. Þá þarf eiginfjárhlutfall að vera yfir 20%.

Afkoma Klasa á síðasta rekstrarári var rúmlega 2,5 milljarðar króna. Eignir félagsins námu um 25 milljörðum króna og eigið fé um 18,2 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfallið var 73,1%.

Sterk fjárhagsstaða Klasa skapar traustan grunn fyrir áframhaldandi vöxt og uppbyggingu. Fram undan eru umfangsmikil verkefni sem munu breyta ásýnd heilla hverfa og skapa heimili fyrir fjölda fólks. Félagið mun áfram leggja áherslu á ábyrga fasteignaþróun með langtímasýn, hagkvæmni og bætt lífsgæði að leiðarljósi.

Klasi hefur unnið að fasteignaþróun frá stofnun félagsins árið 2004 og stýrir verkefnum frá fyrstu hugmynd og skipulagi til uppbyggingar og afhendingar. Áhersla er lögð á hagkvæmni, jákvæða þróun borgarumhverfis og bætt lífsgæði íbúa.

Stærsta verkefni félagsins er Borgarhöfði við Elliðaárvog, þar sem iðnaðarsvæði verður umbreytt í blandaða byggð með þúsundum nýrra íbúða. Klasi hefur unnið að verkefninu frá árinu 2006 og fyrsta skóflustungan var tekin í apríl 2025. Þar eru nú 133 íbúðir í byggingu á Eirhöfða 8, auk 14.000 fermetra skrifstofuhúss á Dvergshöfða 4.