Yfirlitsmynd af Borgarhöfða, nýjum borgarhluta á Ártúnshöfða og við Elliðaárvog. Nánar á borgarhofdi.is.
Klasi leitar að öflugum og lausnamiðuðum verkstjóra til framtíðarstarfa við nýframkvæmdir félagsins.
Verkstjórinn mun stýra daglegum verkefnum á framkvæmdasvæðum Klasa og taka virkan þátt í fjölbreyttum uppbyggingarverkefnum, meðal annars á Borgarhöfða. Þar standa nú yfir framkvæmdir við Eirhöfða 8 og Dvergshöfða 4 og fram undan er uppbygging lífsgæðakjarna á Eirhöfða 2. Starfið felur í sér náið samstarf við verktaka og aðra sem koma að framkvæmdum, með áherslu á framvindu, gæði og öryggi.
Leitað er að einstaklingi með reynslu af framkvæmdum eða verkstjórn og menntun sem nýtist í starfi, til dæmis byggingatæknifræði, meistararéttindi eða viðeigandi iðnmenntun.
Hagvangur sér um ráðninguna og umsóknarfrestur er til 6. desember 2026. Nánari upplýsingar veitir Hlynur Atli Magnússon (hlynur@hagvangur.is).

