Við hjá Klasa viljum þakka sjálfboðaliðum björgunarsveitanna fyrir mikilvægt starf í þágu öryggis okkar allra. Klasi leggur sitt af mörkum með kaupum á Neyðarkallinum til styrktar Slysavarnafélaginu Landsbjörg.
Að baki hverju útkalli liggja æfingar og undirbúningur. Styrkir frá einstaklingum og fyrirtækjum skipta sköpum svo björgunarsveitirnar geti þjálfað sjálfboðaliða, haldið búnaði við og verið tilbúnar að bregðast við allan ársins hring.

