Silfursmári 1-7

Silfursmári 1–7 er lokaáfangi 201 Smára, hverfis sem Klasi hefur byggt upp frá árinu 2014 í samstarfi við Kópavogsbæ.

~80
nýjar íbúðir
738
íbúðir í 201 Smára fullbyggðum
~800 fm
dvalarsvæði / garðsvæði
450
bílastæði, nær öll í kjallara

Reiturinn er í dag að stórum hluta yfirborðsbílastæði sunnan við Smáralind. Með honum klárast hverfið, þar sem nú eru 658 íbúðir en verða um 738 þegar lokaáfanganum lýkur.

Það sem hverfið fær

  • Sunnutorg. Sólríkt torg með útiveitingum á góðviðrisdögum og rými fyrir viðburði og markaði.
  • Um 800 fm dvalarsvæði / garðsvæði með leiksvæði og fjölbreyttum gróðri sem allir í hverfinu geta nýtt.
  • Skjólsæl gönguleið fyrir gangandi á milli Smáralindar og 201 Smára.
  • Þjónusta í göngufæri. Verslun, kaffihús og veitingar á jarðhæðum og heilsuklasi.

Hæðir og bílastæði

Lægstu húsin standa næst Silfursmára og byggðin hækkar fjær, nær Smáralind. Gert er ráð fyrir um 450 bílastæðum innan lóðar, nær öllum í kjallara, svo yfirborðið losnar fyrir torg og garð. Einnig verða um 300 hjólastæði.

Staða verkefnisins

Tillaga að breyttu deiliskipulagi er í ferli hjá Kópavogsbæ og hefur tekið breytingum eftir samráð við íbúa. Gert er ráð fyrir að uppbygging taki um fimm ár, fyrst vestast við Smárahvammsveg og svo til austurs.

Nánari upplýsingar um 201 Smára má finna á www.201.is.