Author Archives: Kristjana

Myndband sýnir þróun á Borgarhöfða

Ingvi Jónasson, framkvæmdastjóri Klasa, sýndi nýtt myndband um þróun íbúðauppbyggingar á Borgarhöfða á fundinum Byggjum fyrir fólk sem haldinn var á vegum Reykjavíkurborgar þann 20. mars 2026. Á næstu árum er reiknað með að alls verði um 6.500 íbúðir í Bryggjuhverfi, á Ártúnshöfða og við Elliðaárvog. Klasi er árið 2026 með 133 íbúðir í smíðum […]

Borgarhöfði kynntur á fundi Reykjavíkurborgar

Ingvi Jónasson, framkvæmdastjóri Klasa var með erindi á fundi Reykjavíkurborgar, Byggjum fyrir fólk, sem haldinn var í morgun þann 20. mars 2026 og tileinkaður var húsnæðisuppbyggingu í höfuðborginni. Borgarhöfði og uppbyggingaráform félagsins á Ártúnshöfða var umfjöllunarefni Ingva. Erindið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Í þessum nýja borgarhluta eru nú í mars 2026 um […]

Niðurstöður könnunar Klasa á áherslum og þörfum við val á búsetu

76% íbúa höfuðborgarsvæðisins finnst skipta miklu máli að í nærumhverfi sínu sé verslun og þjónusta. 86% íbúa höfuðborgarsvæðisins finnst skipta miklu máli að hafa aðgengi að bílastæði við heimili sitt. 82% telja birtugæði góð á sínu heimili og eingöngu 4% íbúa hafa hugleitt að flytja vegna ónógrar birtu. Klasi þróar og skipuleggur hverfi ásamt því […]

Þróunarverkefnum Klasa miðaði vel áfram á árinu 2025

Stærstu verkefni Klasa snúast um mótun byggðar alveg frá skipulagsstigi til afhendingar íbúða eða atvinnurýma. Borgarhöfði og 201 Smári eru þannig langtímaverkefni, þau taka fjölda ára og krefjast skýrrar framtíðarsýnar. Á árinu 2025 miðaði verkefnum vel áfram og mikilvægar vörður markaðar í átt að uppbyggingu heildstæðra borgarhverfa þar sem húsnæði og umhverfi styrkir lífsgæði þeirra […]

Tillaga Klasa og Tendra arkitekta hlutskörpust í samkeppni um þróun að Dalvegi 1

Tillaga Klasa og Tendru arkitekta að þróun á Dalvegi 1

Klasi, í samvinnu við Tendra arkitekta, tók þátt í hugmyndasamkeppni Kópavogsbæjar um þróun Sorpulóðarinnar að Dalvegi 1. Tillaga Klasa og Tendru, sem reyndist hlutskörpust í samkeppninni, miðaði að því að mynda líflega og aðlaðandi umgjörð um skapandi greinar og verslun í nánum tengslum við náttúru og útivist Kópavogsdals. Fjölbreytt aðstaða svo sem leiksvæði og árstíðabundin […]

Klasi þróar nýtt torg og fjölbreytt húsnæði við suðurhlið Smáralindar

201 Smári deiliskipulagsbreytingar tillaga

Kópavogsbær hefur auglýst tillögu Klasa að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir 80 íbúðum, skrifstofuhúsnæði, verslun og veitingum auk kjallara fyrir um 400 bíla á svæði sem nú er hluti bílastæðisins sunnan við Smáralind Gönguleið og sólríkt torg tengja 201 Smára við Smáralind Uppbygging á reitnum er lokaáfangi þróunar Klasa í 201 Smára en að honum […]

Nýr vefur á borgarhofdi.is sýnir umfang uppbyggingar á Ártúnshöfða og í Elliðaárvogi

Um 8.000 nýjar íbúðir verða í borgarhlutanum, um 10% eru tilbúnar eða í byggingu. Fyrsta lota Borgarlínu liggur í gegnum hverfið og stöðin við Krossamýrartorg, hjarta hverfisins, verður lykilskiptistöð. Tveir samþættir leik- og grunnskólar auk safnskóla fyrir eldri grunnskólanema eru ráðgerðir í hverfinu. Á borgarhofdi.is geta áhugasamir fengið lifandi mynd af því hvernig Elliðaárvogur og […]

Tillaga að deiliskipulagi fyrir Silfursmára 1-7 lögð fram

Klasi hefur lagt fram tillögu að breytingu deiliskipulags fyrir Silfursmára 1-7 í Kópavogi, svæði sem er í dag hluti bílastæðis sunnan við Smáralind. Tillagan gerir ráð fyrir tæplega 23 þúsund fermetra uppbyggingu, bæði atvinnuhúsnæði og 80 íbúðum auk kjallara fyrir um 400 bíla. Markmiðið er að styrkja svæðiskjarnann og tengja 201 Smára við Smáralind með […]

Klasi hefur uppbyggingu 133 íbúða á Eirhöfða 8

Eirhöfði 8 - Klasi - Tendra arkitektar

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri tók í dag, 25. apríl 2025, fyrstu skóflustungu að 133 íbúða byggingu á vegum fasteignaþróunarfélagsins Klasa á Borgarhöfða. Klasi hefur unnið að þróunarvinnu á svæðinu undanfarin ár og eru nú þegar um 400 íbúðir í framkvæmdum á vegum verktaka á þróunarsvæði Klasa.  Um er að ræða fyrstu framkvæmd Klasa á svæðinu […]

Upplýsingavefur um deiliskipulagsgerð í Norður-Mjódd

Klasi hefur sett í loftið upplýsingavef um vinnu við deiliskipulagsgerð í Norður-Mjódd. Á teikniborðinu er blönduð byggð sem sem nýtur góðs af fjölbreyttri verslun og þjónustu í göngufæri. Í skipulagsvinnunni er einnig reiknað með heimild fyrir leikskóla og hjúkrunarheimili. Unnið er með áherslur BREEAM Communities vistvottunarkerfisins í skipulagsvinnunni og því m.a. lögð áhersla á samráð […]