Stærstu verkefni Klasa snúast um mótun byggðar alveg frá skipulagsstigi til afhendingar íbúða eða atvinnurýma. Borgarhöfði og 201 Smári eru þannig langtímaverkefni, þau taka fjölda ára og krefjast skýrrar framtíðarsýnar. Á árinu 2025 miðaði verkefnum vel áfram og mikilvægar vörður markaðar í átt að uppbyggingu heildstæðra borgarhverfa þar sem húsnæði og umhverfi styrkir lífsgæði þeirra […]
Tag Archives: Klasi
Um 8.000 nýjar íbúðir verða í borgarhlutanum, um 10% eru tilbúnar eða í byggingu. Fyrsta lota Borgarlínu liggur í gegnum hverfið og stöðin við Krossamýrartorg, hjarta hverfisins, verður lykilskiptistöð. Tveir samþættir leik- og grunnskólar auk safnskóla fyrir eldri grunnskólanema eru ráðgerðir í hverfinu. Á borgarhofdi.is geta áhugasamir fengið lifandi mynd af því hvernig Elliðaárvogur og […]
Klasi hefur lagt fram tillögu að breytingu deiliskipulags fyrir Silfursmára 1-7 í Kópavogi, svæði sem er í dag hluti bílastæðis sunnan við Smáralind. Tillagan gerir ráð fyrir tæplega 23 þúsund fermetra uppbyggingu, bæði atvinnuhúsnæði og 80 íbúðum auk kjallara fyrir um 400 bíla. Markmiðið er að styrkja svæðiskjarnann og tengja 201 Smára við Smáralind með […]
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri tók í dag, 25. apríl 2025, fyrstu skóflustungu að 133 íbúða byggingu á vegum fasteignaþróunarfélagsins Klasa á Borgarhöfða. Klasi hefur unnið að þróunarvinnu á svæðinu undanfarin ár og eru nú þegar um 400 íbúðir í framkvæmdum á vegum verktaka á þróunarsvæði Klasa. Um er að ræða fyrstu framkvæmd Klasa á svæðinu […]
Klasi hefur sett í loftið upplýsingavef um vinnu við deiliskipulagsgerð í Norður-Mjódd. Á teikniborðinu er blönduð byggð sem sem nýtur góðs af fjölbreyttri verslun og þjónustu í göngufæri. Í skipulagsvinnunni er einnig reiknað með heimild fyrir leikskóla og hjúkrunarheimili. Unnið er með áherslur BREEAM Communities vistvottunarkerfisins í skipulagsvinnunni og því m.a. lögð áhersla á samráð […]





