Author Archives: Lilja Birgisdóttir

Klasi styður við starf björgunarsveitanna

Á myndinni eru Sólveig H. Jóhannsdóttir hjá Klasa og Haukur Ingi Jóhannsson frá Landsbjörgu með Neyðarkallinn.

Við hjá Klasa viljum þakka sjálfboðaliðum björgunarsveitanna fyrir mikilvægt starf í þágu öryggis okkar allra. Klasi leggur sitt af mörkum með kaupum á Neyðarkallinum til styrktar Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Að baki hverju útkalli liggja æfingar og undirbúningur. Styrkir frá einstaklingum og fyrirtækjum skipta sköpum svo björgunarsveitirnar geti þjálfað sjálfboðaliða, haldið búnaði við og verið tilbúnar að […]

Silfursmári 12 hlýtur Grænu skófluna 2026

Á myndinni eru, frá vinstri: Hákon Ingi Sveinbjörnsson og Sigurður Einarsson, arkitektar og meðeigendur hjá Batteríinu arkitektum, Kristján Andrésson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs Klasa, María Rúnarsdóttir, forstöðumaður sjálfbærni hjá Heimum, Birgir Guðmundsson, verkefnastjóri fjárfestinga hjá Heimum, og Sólveig H. Jóhannsdóttir, þróunarstjóri Klasa.

Silfursmári 12, sem Klasi þróaði og byggði við Smáralind í Kópavogi, hefur hlotið Grænu skófluna 2026 í flokki nýbygginga. Viðurkenningin er veitt af Grænni byggð og hlaut húsið hana fyrir heildstæða nálgun að sjálfbærni, gæðum og notagildi. Viðurkenningin er ánægjuleg staðfesting á þeirri áherslu sem Klasi leggur á vandaða og sjálfbæra fasteignaþróun. Frá upphafi var […]

Klasi í hópi 25 efstu fyrirmyndarfyrirtækja landsins

Silfursmári 12

Klasi er í 22. sæti á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026 og skipar jafnframt 22. sæti í flokki stórra fyrirtækja. Alls eru 1.780 fyrirtæki á listanum í ár, fleiri en nokkru sinni fyrr, eða um 5,4% fyrirtækja á Íslandi. Fyrirtæki á listanum þurfa að uppfylla ströng skilyrði um afkomu og fjárhagsstöðu. […]