VERKIN
Borgarhöfði
2006-2028
Þróun í hásæti höfuðborgar
Umbreyting á núverandi iðnaðarsvæði við Elliðaárvog í Reykjavík. Nýtt skipulag gerir ráð fyrir þúsundum nýrra íbúða og fjölbreyttrar atvinnustarfsemi. Klasi hefur unnið að þróun svæðisins frá árinu 2006 og stefnir að því að hefja framkvæmdir á árinu 2025.
Mjódd
2022 - 2028
Þróun miðsvæðis í norður Mjódd
Þróunarsvæði við borgarlínu nálægt stofnbraut og þungamiðju höfuðborgarsvæðis. Gefur mörg tækifæri til umbreytingar svæðisins. Fjölbreyttir innviðir eru til staðar ásamt tengingu við útivistarsvæði Elliðaárdalsins.
Álfheimar 49
2022 - 2028
Uppbygging allt að 85 íbúða
Álfheimar 49 er verslunar- og þjónustulóð sem liggur meðfram Suðurlandsbraut. Þar er í dag bensínstöð með verslun og veitingastarfsemi.
201 Smári
2014 - 2025
Nútímaborgarhverfi með snjöllum lausnum
Klasi vann að skipulagi, þróun, framkvæmdum og sölu íbúða í nýju hverfi sunnan Smáralindar í Kópavogi þar sem reistar hafa verið 675 íbúðir ásamt verslunarhúsnæði. Um er að ræða nútímalegt og fallegt borgarhverfi sem hefur reynst vinsæll búsetukostur.
Silfursmári 12
2022 - 2025
Skrifstofu- og verslunarhúsnæði við Smáralind
Uppbygging 2.400 fermetra verslunar- og skrifstofuhúss á atvinnulóð við Smáralind í Kópavogi.
Ártúnshöfði – C40
2022-2027
184 íbúða sjálfbær bygging
Umhverfisvæn bygging með lausnir á sviði sjálfbærni, umhverfisgæða og minna kolefnisspori. Hluti af verkefninu C40 Re-Inventing Cities.
Silfursmári 1-7
2022 - 2026
Atvinnulóð með íbúðum við Smáralind
Atvinnulóð með íbúðum við Smáralind. Vel staðsett lóð við hlið Smáralindar sem býður upp á mikla möguleika. Skipulag liggur fyrir en unnið er að endurskoðun deiliskipulags.
Lágmúli 2 – C40
2022 - 2027
Sjálfbærar lausnir - minna kolefnisspor
Umhverfisvæn bygging með lausnir á sviði sjálfbærni , umhverfisgæða og minna kolefnisspori. Hluti af verkefninu C40 Re-Inventing Cities í Reykjavík.
Garðahraun 1
2022-2025
Atvinnulóð í Molduhrauni í Garðabæ
Um 15 þúsund m2 lóð með samþykktu deiliskipulagi fyrir atvinnuhúsnæði. Heimilt byggingamagn er 12.000 m2. Góð staðsetning með tilliti til stofnbrauta. Mikil atvinnustarfsemi í hverfinu og er eina óbyggða lóðin.
Tjarnarvellir 5 & 9
2022 - 2025
Atvinnulóðir á Völlunum í Hafnarfirði
Stærð lóða er um 5.000 m2 og heimil nýting lóða er 2,0. Lóðir eru á miðsvæði og eru skipulagðar fyrir atvinnustarfsemi.
Silfursmári 2
2021 - 2023
73 ríkulega búnar útsýnisíbúðir
Í Silfursmára 2 eru fjölbreyttar íbúðir af ýmsum stærðum og gerðum þannig að allir geti fundið íbúð við sitt hæfi og smekk. Íbúðirnar eru ríkulega búnar, loftræstingin vélræn, allar innréttingar vandaðar og með steinplötum, heimilistækin frá Siemens og sér
Klettagarðar 27
Selt 2025
Atvinnulóð í Reykjavík
Um 14 þús. fm. lóð með samþykktu deiliskipulagi sem atvinnuhúsnæði. Heimilt byggingamagn er um 15.500 fm. Lóðin hefur verið seld.
Egilsgata 5
Selt 2023
Deiliskipulag
Lóðin stendur á horni Snorrabrautar og Egilsgötu. Nýtt deiliskipulag fyrirlóðina hefur verið staðfest. Þar er gert ráð fyrir atvinnustarfsemi á jarðhæð sem snýr út að Snorrabraut og íbúðum á efri hæðum. Byggingarmagn 5550 fm.
Garðatorg nýr miðbær
2006 - 2017
Þróun nýs miðbæjar í Garðabæ.
Samstarf við bæjaryfirvöld um að efla og endurskipuleggja miðbæ Garðabæjar. Deiliskipulag, þróun og hönnun bygginga frá árinu 2005 til ársins 2017.
Nesvellir / Móavellir
2007 - 2018
Umhverfisvænar íbúðir í Reykjanesbæ
Klasi skipuleggur íbúðarhverfi á Nesvöllum í Reykjanesbæ fyrir 200 íbúðir. Íbúðir byggðar og seldar ásamt byggingarrétti.
Hrólfsskálamelur 1-5
2014 - 2017
Fjölbýlishús á Seltjarnarnesi
Klasi sér um hönnunar- og verkefnastjórn við nýbyggingu við Hrólfsskálamel.
Mánatún
2013 - 2017
Fjölbýlishús í miðborg Reykjavíkur
Samstarfsverkefni um byggingu þriggja fjölbýlishúsa við Mánatún í Reykjavík. Klasi sá um rekstur félags, hönnunar- og framkvæmdastýringu ásamt því að byggja íbúðir og selja byggingarrétt.
Ásabyggð ehf
2008 - 2016
Fasteignaþróun í Reykjanesbæ
Rekstrarumsjón og eignastýring fyrir hönd Ásabyggðar ehf., en tilgangur þess var að koma fasteignum sem áður tilheyrðu varnarliðssvæðinu á Miðnesheiði í almenna notkun. Framtíðarsýnin í rammaskipulagi fyrir Ásbrú er uppbygging á vistvænu þekkingarsamfélagi.
Litlatún í Garðabæ
2007 - 2008
Verslunarmiðstöð í hjarta Garðabæjar
Verslunarmiðstöð við Litlatún í hjarta Garðabæjar. Samstarfsaðilar verksins voru THG Arkitektar, Engle Architects og Ístak.
Nesvellir – þjónustumiðstöð
2006 - 2008
Aðgengileg öllum eldri íbúum Reykjanesbæjar
Klasi vinnur deiliskipulag fyrir Nesvelli ásamt því að reisa þjónustumiðstöð og öryggisíbúðir fyrir eldri borgara á Nesvöllum í Reykjanesbæ.
Hádegismóar
2004 - 2006
Höfuðstöðvar Morgunblaðsins
Nýjar höfuðstöðvar Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, voru reistar að Hádegismóum 2. Samstarfsaðilar verksins voru ÍAV, THG Arkitektar og VSÓ ráðgjöf.
Tónlistarhús
2005 - 2006
Skipulagsverðlaunin 2006
Klasi tekur þátt í samkeppni um byggingu tónlistar- og ráðstefnuhúss við Austurhöfn í Reykjavík. Gert deiliskipulag ásamt hönnun og skipulag nærliggjandi húsa og viðskiptaáætlana.
Markmið félagsins er að þróa
vistvænar, hagkvæmar lausnir fyrir borg
og byggð. Stolt til framtíðar.